Háskóli Íslands er í fjölbreyttu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir sem skapar tækifæri fyrir nemendur og starfsfólk til að starfa að nýsköpun og leysa hagnýt verkefni. Tækifærin geta sem dæmi falist í:
- Rannsóknum í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir.
- Starfsþjálfun.
- Hluta-, sumar- eða framtíðarstarfi í nýsköpunartengdum verkefnum.
Starfsfólki og nemendum býðst auk þess margs konar stuðningur við nýsköpunar- og frumkvöðlastarf innan skólans.