Þú getur stillt Uglu þannig að matseðil Hámu birtist á forsíðunni. Matseðill er einnig á vef Félagsstofnunar stúdenta og í SmáUglunni.
Á vef Stúdentaráðs finnur þú ýmsar hagnýtar upplýsingar ásamt lista yfir nemendafélög og tengiliði þeirra.
Þín próftafla er í Uglunni: Uglan mín → Námskeiðin mín → Próf. Einum til þremur dögum fyrir prófið getur þú séð í hvaða byggingu, stofu og við hvaða borð þú tekur prófið.
Á vefnum honnun.hi.is má nálgast sniðmát fyrir kápur bakkalár- og meistararitgerða á öllum fræðasviðum skólans.
Þú getur skoðað þína stundatöflu í Uglu með því að smella á Uglan mín → Stundataflan mín og einnig í SmáUglunni.
Í kennsluskrá Háskóla Íslands má finna upplýsingar um allar námsleiðir og námskeið sem eru í boði við skólann.
Brautskráningarskírteini og viðaukar eru aldrei endurútgefin en hægt er að koma með frumrit á Þjónustuborðið á Háskólatorgi og fá staðfest afrit af þeim.
Þú getur nálgast námskeiðalýsingar á pappírsformi hjá Þjónustuborðinu á Háskólatorgi, gegn framvísun skilríkja.
Þú getur nálgast námsferilsyfirlit í Uglu, á island.is og á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi.
Þú getur nálgast ýmis vottorð í Uglu og á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi.