Þú getur nálgast ýmis vottorð í Uglu þér að kostnaðarlausu undir Uglan mín → Vottorð og námsferilsyfirlit.
Ef skila þarf staðfestum gögnum á pappír er hægt að fá stimplað og undirritað vottorð á Þjónustuborðinu Háskólatorgi gegn framvísun skilríkja eða sent í bréfpósti á lögheimili þitt. Rafrænt innsigluð vottorð, önnur en þau sem fást í sjálfsafgreiðslu, er hægt að panta með því að senda tölvupóst á hi@hi.is. Vottorð kostar 350 kr.
Vinsamlegast athugaðu að mjög mismunandi er hvaða upplýsingar þurfa að koma fram í vottorðum og því mikilvægt að þú takir skýrt fram hvaða upplýsingar þú þarft.
Sjá einnig: