Þú byrjar á að fara í Uglu og veitir Strætó leyfi til að fá staðfestingu á að þú sért í námi við HÍ sjá nánari upplýsingar hér. Síðan sækir þú um nemakort á Klapp vef Strætó.
Fyrir allar námsleiðir skal fylgja leiðbeiningum um inntökuskilyrði. Veldu landið þar sem þú laukst námi og fylgdu leiðbeiningum fyrir grunnnám eða meistaranám, eftir því sem við á.
Alþjóðasvið gefur allar upplýsingar um nám erlendis.
Þú fylgist með afgreiðslu umsóknar þinnar í umsóknagáttinni þar sem þú sóttir um námið, undir flipanum „Yfirlit umsókna“.
Algengustu vottorð og gögn, t.d. fyrir stéttarfélag, húsaleigubætur, fæðingarorlof, Menntasjóð, leikskóla, Vinnumálastofnun eða annað, er hægt að nálgast í Uglu og á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi.
Á Landsbókasafni – Háskólabókasafni eru nokkrar ljósritunarvélar fyrir notendur safnsins. Hægt er að kaupa kort í afgreiðslu safnsins á 1. hæð.
Félagsstofnun stúdenta rekur þrjá leikskóla á háskólasvæðinu. Nánari upplýsingar um þá eru á vef Leikskóla FS.
Stúdentagarðar bjóða nemendum Háskóla Íslands til leigu húsnæði af ýmsum stærðum og gerðum á sanngjörnu verði.
Ef þú veikist og getur ekki mætt til prófs þarftu að tilkynna veikindi með tölvupósti til Nemendaskrár, nemskra@hi.is, innan þriggja daga frá prófdegi.