Viðskiptafræðideild er í samstarfi við um 70 fyrirtæki, stofnanir og ráðuneyti um starfsþjálfun fyrir nemendur og er því vel tengd atvinnulífinu. Starfsþjálfun Viðskiptafræðideildar er þverfagleg og er ætluð nemendum á þriðja ári í grunnnámi og á öðru ári í meistaranámi. Öllum nemendum Háskóla Íslands er frjálst að sækja um þær stöður sem vekja áhuga þeirra. Mikilvægt er þó að kanna hjá sinni deild hvort starfsþjálfunin sé metin inn í námið.

Á þriðjudaginn var haldinn kynningarfundur fyrir áhugasama nemendur með stjórnendum frá nokkrum af þeim fyrirtækjum sem bjóða upp á starfsþjálfun hjá Viðskiptafræðideild næsta vor. Það voru þau Andrea Lilja Ottósdóttir mannauðsstjóri Coca Cola á Íslandi, Ásta Þyrí Emilsdóttir mannauðsstjóri hjá Deloitte, Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, Birta Líf Ólafsdóttir og Sunneva Eir Einarsdóttir, eigendur Teboðsins, og Sverrir Sigursveinsson, framkvæmdastjóri og eigandi Kontakt.

þau héldu kynningar á þeim möguleikum sem fyrirtækin þeirra bjóða nemendum uppá. Þetta eru þó ekki öll fyrirtæki sem bjóða upp á starfsþjálfun næsta vor, það eru fleiri fyrirtæki sem taka þátt. Hægt er að fá nánari upplýsingar um þær stöður sem eru í boði á starfsþjálfunarsíðu Viðskiptafræðideildar. Umsóknarfrestur er 27. október 2024 fyrir vorönn 2025.

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil