Fyrir grunnnám í Háskóla Íslands þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru lokaprófi á þriðja hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla.
Á Þjónustumiðju Háskóla Íslands getur þú séð hvernig þú færð nýtt lykilorð.
Hér er hægt að tilkynna kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi, einelti og annað ofbeldi.
Misjafnt er eftir sviðum og deildum hversu mörg námskeið eru kennd í fjarnámi.
Meginreglan er að tímasókn er frjáls. Þó er oft gerð krafa um tímasókn í námskeiðum þar sem kennslan byggist að hluta á framlagi nemenda, s.s. umræðu- og verkefnatímum.
Þú getur óskað eftir afriti af persónuupplýsingum þeim sem Háskóli Íslands geymir um þig með því að leita til Þjónustuborðsins Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 102 Reykjavík og fylla þar út eyðublað. Athugaðu að framvísa þarf persónuskilríkjum þegar beiðni er lögð inn sem og við móttöku gagna.
Nei, ekki er hægt að sækja eingöngu um einstök námskeið. Til að stunda nám við Háskóla Íslands þarf fyrst að sækja um og fá inngöngu í námsleið.
Ef þú sækir um grunnnám getur þú bara sótt um eina námsleið. Ef þú sækir um framhaldsnám er hægt að sækja um nám á fleiri námsleiðum.
Sjá upplýsingar um undanþágur frá formlegum inntökuskilyrðum í bakkalárnám hér.
Hægt er að bóka stofu fyrir hópavinnu einu sinni í viku í allt að þrjá tíma. Til að bóka þarf að senda póst á kennslustofur@hi.is. Í póstinum verður að taka fram nafn, kennitölu, námskeið og námskeiðsnúmer og nöfn þeirra sem eru í hópnum.