Þegar þú sækir um grunnnám er einungis hægt að sækja um eina námsleið.

Ef þú hefur sótt um námsleið sem hefur inntökupróf og þú öðlast ekki rétt til að hefja námið getur þú sótt um aðra námsleið eftir að niðurstöðurnar hafa verið birtar, fram til 20. júlí.

Ef þú hefur nú þegar sótt um námsleið í grunnnámi en vilt breyta þeirri námsleið og umsóknarfrestur í námið er ekki liðinn, getur þú sótt um aftur. Þá fellur fyrra val á námsleið niður. Það er bara ein umsókn sem er gild hverju sinni og alltaf sú sem var síðast sótt um.

Þegar sótt er um framhaldsnám er hægt að sækja um nám á fleiri námsleiðum.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil