Allar persónuupplýsingar sem Háskóli Íslands safnar, nýtir eða vinnur með öðrum hætti eru meðhöndlaðar í samræmi við ný lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Með persónuupplýsingum er átt við þær upplýsingar sem auðkenna tiltekinn einstakling eða væri hægt að nota í þeim tilgangi.
Öll vinnsla Háskóla Íslands á viðkvæmum persónuupplýsingum fer fram með stoð í lögum um persónuvernd og reglugerð ESB 2016/679 um sama efni og í samræmi við ítrustu öryggiskröfur.
Þú getur óskað eftir afriti af persónuupplýsingum þeim sem Háskóli Íslands geymir um þig með því að leita til Þjónustuborðsins Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 102 Reykjavík og fylla þar út eyðublað. Athugaðu að framvísa þarf persónuskilríkjum þegar beiðni er lögð inn sem og við móttöku gagna.