Educhange Research Team

Mennta- og barnamálaráðuneytið styður við framkvæmd rannsóknarverkefnisins EDUCHANGE í viljayfirlýsingu sem undirrituð var í Háskóla Íslands fyrir helgi. 

Uppgötvun vísindafólks við Háskóla Íslands og Landspítala sýnir að hægt er að greina erfðasjúkdóma með snjallsíma.

„Ein af þeim sviðsmyndum sem sagan segir okkur og sem jarðskjálftafræðingar hafa nefnt sem líklegan atburð í náinni framtíð, er jarðskjálfti á austurhluta Reykjanesskaga, sem gæti verið sambærilegur við Suðurlandsskjálftana 2000 og Ölfusskjálftann 2008.

Kynferðisleg áreitni og ofbeldi á vinnustað tengist ýmsum heilsuvandamálum á meðal kvenna á Íslandi, eins og þunglyndi, kvíða, sjálfsskaða, lotudrykkju og svefnvanda. Þetta sýna niðurstöður úr hinni viðamiklu rannsókn Áfallasaga kvenna sem voru nýlega birtar í alþjóðlega vísindatímaritinu The Lancet Public Health.

Vitaly Kazakov

Margir sitja fastir við skjáinn þessa dagana og fylgjast með bestu knattspyrnumönnum álfunnar etja kappi í Evrópumóti landsliða. Hér er um að ræða risaviðburð enda er knattspyrna vinsælasta íþrótt í heimi.

„Samanburður á því sem er að gerast núna á Reykjanesi við sögu eldgosa á Reykjanesskaganum frá fyrri tímum bendir eindregið til þess að Reykjanesgosbeltið sé vaknað af um það bil 800 ára löngum blundi og að nýtt gostímabil sé hafið.

„Það hefur lengi verið vitað að hægt er að fyrirbyggja útilokun skynsegin (e. neurodivergent) fólks og einstaks framlags þeirra til samfélagsins og menningarinnar í heild og ég vona að verkefnið muni hafa jákvæð og langvarandi áhrif á samfélagslega inngildingu þeirra“...

Síðustu ár hafa orðið örar breytingar á borgarlandslagi Reykjavíkur. Í miðborginni hafa gömul hús verið rifin niður, sum hafa verið færð innan borgarmarkanna en önnur hafa verið gerð upp af alúð.

Angel Ruiz-Angulo og Charly de Marez

Haffræðingar á vegum ROCS og Háskóla Íslands greina í fyrsta sinn mikilvægi botnstrauma suður af landinu

Niðurstöður nýrrar rannsóknar á inniliggjandi sjúklingum með COVID-19 sýna að næringarástand hefur áhrif á innlagnartíma og líkur á dauðsföllum.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil