Flest íþróttaáhugafólk sem fylgist með hópíþróttum hefur eflaust einhvern tíma tekið andköf eða litið undan þegar höfuð tveggja leikmanna skella saman í hita leiksins þannig að báðir liggja óvígir eftir.

Áhrif hlýnunar loftslags á kolefnislosun úr jarðvegi á túndrusvæðum reyndust næstum fjórum sinnum meiri en áður hafði verið áætlað samkvæmt nýrri rannsókn vísindamanna sem sagt er frá í grein í tímaritinu Nature sem kom út í gær.

Krabbamein er gríðarlega alvarlegur sjúkdómur en rúmlega einn af hverjum þremur greinist með krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Þessi illvígi sjúkdómur hefur veruleg áhrif á íslenskt samfélag, fjölskyldur og einstaklinga.

Ragnheiður I. Bjarnadóttir

„Mér finnst það virðingarvottur gagnvart þessum börnum og foreldrum þeirra að rannsaka andvanafæðingar á Íslandi,“ segir Ragnheiður I. Bjarnadóttir sem vinnur að doktorsrannsókn sem ber heitið Andvanafæðingar á Íslandi 1996-2021: nýgengi, orsakir og afleiðingar.

Ólafur Ögmundarson, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, er meðal höfunda nýrrar vísindagreinar sem birtist í hinu virta tímariti Nature Communications.

Ný rannsókn vísindafólks í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og Karolinska Institutet í Stokkhólmi sýnir að áhrif áfalla í æsku á þróun geðraskana á fullorðinsárum er óháð fjölskyldutengdum þáttum, eins og erfðum og umhverfi í uppvexti.

Sara M. Ólafsdóttir

Það dylst engum að leikskólar eru mikilvæg grunnstoð í samfélagi okkar. Lögum samkvæmt á velferð og hagur barna að vera leiðarljós í öllu þeirra starfi. Starfshættirnir eiga að mótast af kærleika og umburðarlyndi, jafnrétti og lýðræðislegu samstarfi svo fátt eitt sé nefnt.

Lára Jóhannsdóttir

Liðin eru rétt um fjögur ár síðan kórónuveiran skall á íslensku samfélagi af fullum þunga. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og fjölmargir kimar þessarar óværu verið rannsakaðir.

Illustration of magma

Eldgos hófst á ný á Reykjanesi í morgun en vísindamenn hafa unnið að mjög nákvæmum jarðskorpumælingum í þessari hrinu eldsumbrota sem hófst með gosi í Fagradalsfjalli þann 24. mars árið 2021.

Bryndís Gunnarsdóttir

Leikskólaárin eru ein af þeim mikilvægustu í lífi ungra barna. Í leikskólanum stíga þau sín fyrstu skref við að efla félagsleg samskipti við önnur börn.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil