Árið 2025 kom úr rit Valgerðar Sólnes Hvenær má skerða eignarrétt? Yfirlit yfir lögmætar takmarkanir eignarréttar. Útgefandi er Fons Juris.
Árið 2025 kom út fræðirit í tilefni af sjötugsafmæli og starfslokum Brynhildar G. Flóvenz, fyrrverandi dósents við Lagadeild HÍ. Útgefandi er Codex en ritstjórn var í höndum Kára Hólmars Ragnarssonar dósents, Ragnheiðar Bragadóttur prófessors emeritu og Hrefnu Friðriksdóttur prófessors.
Í október 2025 fékk Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við Lagadeild, um þriggja milljóna dollara styrk frá alþjóðlega rannsóknarsjóðnum Wellcome Trust. Styrkurinn rennur til rannsóknarverkefnis sem ber heitið „Fostering Reciprocity in Environmental DNA science through Yielded stewardship, Just benefit, and Accountability“ (FREYJA).
Efnasamsetning kviku í fyrstu fjórum gosunum í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga bendir til þess að kvikan komi úr nokkrum kvikuhólfum eða -þróm sem eru nálæg hver annarri á um fimm kílómetra dýpi. Það þýðir að erfitt gæti orðið að spá fyrir um næstu gos og hegðun þeirra.
„Það öðruvísi að horfa í augu uglunnar en flestra annarra fugla. Það er eitthvað varðandi augun sem dregur mann að sér,“ segir Gunnar Þór Hallgrímsson, prófessor í dýralíffræði í HÍ, sem hefur manna mest rannsakað þennan einstaka fugl hérlendis.
Torfbæir eru einn helsti byggingar- og menningararfur Íslendinga. Þeir hafa sumir staðið í hundruð ára og gefa okkur innsýn inn í líf forfeðra okkar
Samspil tilfinninga og sjálflægra hugsana í daglegu lífi getur ýtt af stað þunglyndislotum hjá þeim sem þjást af þunglyndi.
Marianne Helene Rasmussen, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Húsavík, og samstarfsfólk hennar hefur fengið veglegan styrk til að búa til stafrænt námsefni um hafið sem byggjast mun m.a. á myndefni úr rannsóknarleiðangrum um norðurhöf.
Dr. Gianluca Levi, vísindamaður við Raunvísindastofnun Háskólans, hefur hlotið 1,5 milljóna evra styrk, jafnvirði nærri 230 milljóna króna, frá Evrópska rannsóknaráðinu (ERC) til rannsóknaverkefnis sem miðar að því að þróa nýjar aðferðir og tækni sem auðveldar þróun nýrra og hagkvæmari leiða til að nýta sólarorku.
Vísindamenn við Lífvísindasetur Háskóla Íslands hafa ásamt erlendu samstarfsfólki birt grein í tímaritinu EMBO Reports þar sem fjallað er um hvernig skaðlegar stökkbreytingar í tilteknu prótíni geta haft jákvæð áhrif á sýnileg einkenni lífvera.