Nemendur Háskóla Íslands sem telja sig eiga rétt á úrræðum í námi og/eða prófum geta sótt rafrænt um úrræði án þess að bóka viðtal hjá ráðgjafa. Gott er að kynna sér um leið reglur um úrræði í námi. Hægt er að sækja um úrræði t.d. vegna:
- fötlunar
- sértækra námsörðugleika
- athyglisbrests
- greiningar á einhverfurófi
- stoðkerfisvanda
- annarra veikinda
Þú getur bókað viðtal hjá ráðgjafa hér eða í síma 525-4315. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið urraedi@hi.is.