Erasmus+ áætlunin leggur mikla áherslu á inngildingu til að gera fleiri nemendum kleift að fara í námsdvöl erlendis. Þetta er gert með sérstökum styrkjum til þeirra sem mæta hindrunum af ýmsum toga.
Nemendur Háskóla Íslands sem fara í skiptinám, starfsþjálfun eða styttri dvalir á vegum Erasmus+ eiga kost á að sækja um inngildingarstyrki til Alþjóðasviðs. Sótt er um styrkinn um leið og sótt er um námsdvöl erlendis.