Í einstaka tilfellum bjóðast styrkir til skiptináms utan Evrópu. Upplýsingar um þá styrki veitir starfsmaður Alþjóðasviðs eftir því sem við á.
Ragna Lorentzen sjóðurinn býður íslenskum nemendum sem sækja um nám á grunn- eða framhaldsstigi í menntavísindum við Aarhus University að sækja um námsstyrk. Styrkirnir eru aðallega veittir nemendum í grunnnámi eða meistaranámi en nemendur í doktorsnámi geta einnig sótt um. Bæði nemendur sem fara til Aarhus í skiptinám og nemendur sem sækja um á eigin vegum geta sótt um styrkinn.
Styrkirnir eru ætlaðir nemendum með takmörkuð fjárráð.
Nánari upplýsingar á vefsíðu Ragna Lorentzen sjóðsins
Meistaranemar í HÍ geta sótt um styrk til skiptináms í Bandaríkjunum í eitt skólaár. Sækja verður um styrkinn áður en hægt er að sækja um skiptinám, en umsóknarfrestur fyrir styrkinn fyrir skólaárið 2027-2028 er 14. október 2026. Sjá nánari upplýsingar á vef Fulbright.
- Nemendur HÍ sem eru búsettir á Íslandi eiga þess kost að sækja um styrki fyrir námsdvöl erlendis úr ýmsum sjóðum. Hver dvöl má ekki vera styrkt af fleiri en einum styrktarsjóði.
- Nemendur HÍ sem eru búsettir erlendis geta sótt um styrk til námsdvalar í öðru landi.
- Námsdvalir í sama landi og nemendur hafa búsetu í eru ekki styrktar.
- Nemandi getur fengið styrk oftar en einu sinni á meðan á háskólanámi stendur. Heildarfjöldi styrktra mánaða í Erasmus+ getur þó ekki farið umfram 12 mánuði á hverju námsstigi. Starfsþjálfun að lokinni brautskráningu telst með því námsstigi sem útskrifast var á.
- Nemendur geta sótt um styrk fyrir styttri námsdvöl erlendis í 5-30 daga. Nemandi á grunn- eða meistarastigi getur fengið að hámarki einn styrk á hverju skólaári vegna styttri dvalar. Doktorsnemi getur fengið að hámarki einn styrk á hverju misseri til styttri dvalar og að hámarki 5 styrki á námstímanum.
- Nemandi sem tekur þátt í blandaðri námsdvöl, þar sem hluti fer fram sem fjarnám eða fjarþjálfun á netinu, getur einungis fengið styrk vegna þess hluta sem fer fram á staðnum hjá gestastofnun erlendis.