""
Aðgengissetur

Aðgengissetur Nemendaráðgjafar Háskóla Íslands er til húsa í Gimli, stofu 101 á 1. hæð. Tölvuverið hefur 10 vinnustöðvar.

Aðgengissetur er próftökuherbergi og vinnuaðstaða fyrir nemendur sem þurfa á sérhæfðum búnaði að halda í námi og prófum. Þar er að finna hugbúnað fyrir nemendur með sjónskerðingu, stillanlega skrifborðsstóla og hækkanleg borð.

Aðgengissetur er upptekið vegna prófa:

8. apríl kl. 08:30 - 13:00.
9. apríl kl. 08:00 - 10:30.
13. apríl kl. 15:30 - 17:30.
15. apríl kl. 10:00 - 11:00.
15. apríl kl. 13:20 - 14:30.

Úrræði í prófum

Til að fá úrræði í prófum/námi verður nemandi að framvísa gögnum (greiningu/vottorði) frá viðeigandi sérfræðingi og sækja um úrræði hér. Lokafrestur til að sækja um úrræði er 1. október á haustmisseri og 1. mars á vormisseri.

Athugið að prófúrræði taka ekki gildi fyrr en ráðgjafi og nemandi hafa samþykkt samning í Uglu sem tekur að minnsta kosti þrjá daga að ganga í gegn.

Ef aðstæður á prófstað eru ekki í samræmi við samninginn þinn hvetjum við þig til að tilkynna það strax til prófvarðar meðan á próftöku stendur. Eftir að próftöku lýkur getur verið erfitt að bregðast við ábendingum.

Hér er að finna nánari upplýsingar um greiningar, vottorð og úrræði í boði. 

Athugið að próf í Canvas eru alltaf á vegum kennara. Nemandi ber ábyrgð á að upplýsa kennara um lengdan próftíma.

Hvernig veit ég hvort próf er á vegum kennara eða Prófaskrifstofu?

Hér er að finna hlutapróf og lokapróf á vegum Prófaskrifstofu HÍ. Ef próf birtist í þessum próftöflum ábyrgjast prófstjórn HÍ og NHÍ úrræði.

Athugið að próf í Canvas eru alltaf á vegum kennara. Nemandi ber ábyrgð á að upplýsa kennara um lengdan próftíma með að minnsta kosti viku fyrirvara.

Lengdur próftími

Ef próf er tekið í Inspera fá nemendur sjálfkrafa lengdan tíma í samræmi við skráningu NHÍ.

Kennarar hafa umsjón með Canvas prófum. Í slíkum prófum leita nemendur sjálfir til kennara/deildar ef þeir telja sig þurfa á prófúrræðum að halda.

Í Canvas þurfa viðkomandi kennarar að skrá lengdan tíma hjá hverjum og einum nemanda. Þetta er gert í hvert sinn sem nemandi tekur próf, hvort heldur í hlutaprófum eða lokaprófum.

Próf á vegum kennara án aðkomu Prófaskrifstofu og NHÍ.

Ef þau próf er ekki að finna á töflunum: Hlutapróf og Lokapróf, þarf nemandi að tilkynna kennara hyggist hann nýta úrræðin sín.

Hafðu samband
Nemendaráðgjöf
Mán- fim: 9:00 -15:00, fös: 10:00 - 15:00
Samfélagsmiðlar

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:

Facebook
Instagram

Mynd af margmenni á Háskóladegi á nýnemadögum

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil