Herferð 2025-2026
Inntökuskilyrði
Grunnnám

Fyrir grunnnám í Háskóla Íslands þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru lokaprófi á þriðja hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla.

Fyrir utan almennu kröfuna um stúdentspróf eða annað lokapróf á þriðja hæfniþrepi eru inntökuskilyrði mismunandi eftir deildum Háskólans. Ítarlegri upplýsingar er að finna í reglum um inntökuskilyrði í grunnnám við HÍ. Farið er eftir þessum reglum þegar umsóknir um grunnnám eru metnar.

Nemendur sem hafa lokið námi frá erlendum skóla gætu þurft að standast sérstakt inntökupróf í íslensku á B2-stigi.

Í kennsluskrá Háskólans eru nánari upplýsingar um inntökuskilyrði.

Á síðum fræðasviða, deilda og námsleiða eru einnig nánari upplýsingar.

Ákveðnar deildir Háskólans nýta heimild til að veita undanþágur frá formlegum inntökuskilyrðum í grunnnám (nám á bakkalárstigi) samkvæmt ákvörðun viðkomandi fræðasviða. Þetta á aðeins við vegna náms í sumum deildum skólans en öðrum deildum ekki.

Sjá nánari upplýsingar í kennsluskrá: Yfirlit um fræðasvið og deildir og viðmið við mat á undanþáguumsóknum.

Í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræðum og tannlæknisfræði eru haldin inntökupróf í júní. Umsóknarfrestur er til 20. maí. Sjá nánari upplýsingar á síðu Læknadeildar.

Í hjúkrunarfræði (BS, 240 e.), tannlæknisfræði og tannsmíði eru haldin samkeppnispróf við lok haustmisseris í desember.

Í geislafræði er fjöldatakmörkun beitt við lok fyrsta námsárs og miðast við tiltekinn fjölda nemenda sem lokið hafa öllum námskeiðum fyrsta árs og hlotið hæstu meðaleinkunnirnar.

Umsækjendur um BA-nám í íslensku sem öðru máli og íslenskustoð við Háskóla Íslands þurfa að standast inntökupróf í íslensku.

Umsækjendur um íslensku sem annað mál, hagnýtt nám, þurfa að standast inntökupróf í íslensku.

Sjá nánar um fjöldatakmarkanir og fyrirvara í kennsluskrá.

Framhaldsnám

Um inntökuskilyrði í nám á meistara- og doktorsstigi gilda sérreglur deilda. Þessar reglur eru birtar í upplýsingum um einstakar námsleiðir í kennsluskrá og á vefsíðum fræðasviða, deilda og námsleiða.

Ítarefni
""
""
Hafðu samband
Nemendaskrá
Virka daga 10:00 - 14:00
Rafrænar umsóknir

Fyrir rafrænar umsóknir og stöðu umsóknar:
hi@hi.is

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil