Nemendur HÍ geta sótt um Erasmus+ styrk til starfsþjálfunar eða rannsóknarvinnu í háskólum, fyrirtækjum eða stofnunum í Evrópu. Einnig er hægt að fara í starfsþjálfun að loknu námi, í allt að sex mánuði frá útskrift. Nemendur eiga þannig kost á dýrmætri alþjóðlegri starfsreynslu sem getur komið sér vel síðar meir.
Nemendur geta fengið dvölina metna sem hluta af náminu við HÍ, sem hluta af lokaverkefni eða skráða í skírteinisviðauka.
Upphæð styrkja fer eftir áfangastað og lengd dvalar (athugið að upphæðirnar geta verið breytilegar eftir skólaárum).
- Ferðastyrkur: 309-1188 evrur
- Styttri dvöl (5-30 dagar): 79 evrur á dag fyrstu 14 dagana, síðan 56 evrur á dag
- Lengri dvöl (2-12 mánuðir): 700-756 evrur á mánuði
Nemendur sækja um Erasmus+ styrk til starfsþjálfunar hjá Alþjóðasviði HÍ.