Miðstöð framhaldsnáms býður doktorsnemum upp á víðtækan stuðning á borð við árlegan kynningarfund, rafrænt námsumsjónarkerfi sem og námskeið í akademískum færniþáttum og starfsþróun.
31. ágúst 2026 kl. 9:00 - 12:00. Fjarfundur.
Dagskráin fer fram á ensku og er ætluð öllum nýinnrituðum doktorsnemum.
- Skráning
- Dagskrá
- Glærupakki
- Upptökur
Doktorsnáman er rafræna námsumsjónarkerfið fyrir doktorsnema við Háskóla Íslands.
Hagnýt örnámskeið og vinnustofur fyrir doktorsnema og nýdoktora sem efla akademíska færni og styðja við starfsþróun þeirra.
- Allir viðburðir haldnir á ensku.
- Allir viðburðir eru annað hvort fjarviðburðir eða blandaðir fjar- og staðviðburðir, nema annað sé tiltekið.
- Styttri viðburðir eru teknir upp, en ekki lengri vinnustofur.
- Þátttakendur fá skírteini um starfsþróun hverja önn.
- Í samstarfi við fræðasviðin, Kennslumiðstöð, Ritver, Nemendaráðgjöf, Alþjóðasvið og Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn.
Dagskrá haust 2026
- Tilkynnt bráðlega.
Dagskrá vor 2026
Dagskrá haust 2025
Ef doktorsnám er skipulagt sameiginlega með öðrum háskóla skal gerður um það sérstakur samningur. Þess er gætt að námið uppfylli sambærilegar gæða- og námskröfur og gerðar eru við Háskóla Íslands og að ábyrgð á gæðum námsins sé skýr.
Háskóli Íslands hefur gert samninga um tvöfaldar doktorsgráður við 53 háskóla í 20 löndum.
Miðstöð framhaldsnáms fer yfir og heldur utan um sértæka samstarfssamninga um doktorsnám.
Allar fræðigreinar
Raungreinar
Hug- og félagsvísindi
Við Háskóla Íslands eru starfandi FeDoN - Félag doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands og eftirtalin félög doktorsnema á fræðasviðunum:
- Arkímedes - Félag doktorsnema á Verkfræði- og náttúruvísindasviði
- Doktorsnemaráð Heilbrigðisvísindasviðs
- FdMHI - Félag doktorsnema á Menntavísindasviði
- Hugdok – Félag doktorsnema á Hugvísindasviði
- Seigla - Félag doktorsnema á Félagsvísindasviði
Hægt er að óska eftir viðtali við Náms- og starfsráðgjafa í síma 5254315 eða með því að senda tölvupóst á netfangið radgjof@hi.is
Sálfræðingar Nemendaráðgjafar veita nemendum sálfræðiráðgjöf og stuðning.
Stúdentaklíník Sálfræðideildar veitir háskólanemum og börnum þeirra sálfræðiþjónustu, einstaklingsmeðferð og hópmeðferð. Þjónustuna, sem starfrækt er á vegum Sálfræðideildar, veita meistaranemar í klínískri sálfræði við Háskóla Íslands undir handleiðslu sérfræðings í klínískri sálfræði.
Doktorsnemar Háskóla Íslands eru ýmist eingöngu í námi eða tímabundið ráðnir á styrk samhliða námi. Þegar þeir eru ráðnir á styrk eru þeir skilgreindir bæði sem nemendur og starfsfólk og bera starfsheitið doktorsnemi í samræmi við stofnanasamninga. Ráðningarsamningur er byggður á doktorsnáminu og styrkupphæð þeirrar rannsóknar sem doktorsneminn er ráðinn inn til að sinna. Doktorsnemar á styrk eru fyrst og fremst skilgreindir sem nemendur enda byggir starfssambandið á námi þeirra.
Doktorsnemar á styrk eru í tímabundnu ráðningarsambandi við háskólann og njóta allra þeirra kjara og réttinda sem getið er á um í kjarasamningi, reglum háskólans og lögum. Kostnaður sem fellur til í starfi er greiddur af þeim hluta styrksins sem kallaður er samrekstur (e. overhead) .
Í þessu skjali eru talin upp ýmis atriði sem snúa að réttindum og skyldum doktorsnema eftir því hvort viðkomandi er einungis doktorsnemi eða doktorsnemi með ráðningarsamning. Þegar réttindi doktorsnema með ráðningarsamning eru skilgreind hér fyrir neðan er horft fyrst og fremst til þess að háskólinn uppfylli þau kjarasamningsbundnu réttindi sem þeir eiga að njóta.
Doktorsnemi skal frá upphafi náms hafa umsjónarkennara sem hann ráðfærir sig við um skipulag námsins, val námskeiða og annað sem náminu tengist. Umsjónarkennari skal ávallt vera akademískur starfsmaður við Háskóla Íslands í viðkomandi grein. Oftast er umsjónarkennari einnig leiðbeinandi.
Á hverju ári stendur Miðstöð framhaldsnáms fyrir hagnýtum vinnustofum og kynningum sem efla færni akademískra starfsmanna í að leiðbeina doktorsnemum. Í þessum viðburðum er farið yfir góðar venjur og helstu atriði er varða réttindi, skyldur og hlutverk leiðbeinenda. Dagskrá er í samstarfi við Rannís og öðrum háskólum.
Frekari upplýsingar um Verkfærakistuna veitir Toby Erik Wikström.
Ísland
- The complexities of the doctoral candidate-supervisor relationship: Voices of candidates at the University of Iceland
- Hvað á leiðbeinandi að gera fyrir nemanda sem vinnur að doktorsritgerð?
Bretland
Bandaríkin
- A Nobel laureate shares 10 rules for being an effective mentor of young research scholars (Inside Higher Ed)
- Toolkit: Cultivating A Culture of Mentoring (Duke University)
- Center for the Improvement of Mentored Experiences in Research (UW-Madison)
- The Science of Effective Mentoring in STEMM (National Academies)
- The Science of Effective Mentoring in STEMM Online Guide (National Academies)