Nemendaráðgjöf býður nemendum Háskóla Íslands sálfræðiþjónustu. Sálfræðingar veita ráðgjöf og stuðning í einstaklingsviðtölum, auk þess að halda fyrirlestra og hópnámskeið.
Viðtölin eru gjaldfrjáls fyrir nemendur skólans og boðið er upp á 1 til 3 viðtöl hvert misseri.
Ekki er um fulla meðferð að ræða en sé þörf á frekari meðferð leiðbeina sálfræðingarnir viðkomandi um næstu skref og vísa í viðeigandi úrræði.
Viðtölin fara fram á íslensku og ensku en í boði eru viðtöl á staðnum eða fjarviðtöl.
Þjónustan felur ekki í sér geðgreiningar (t.d. ADHD) eða vottorð fyrir sérúrræði í námi.
Hafðu samband við salfraedingar@hi.is til að bóka tíma.