„Karllægri vinnumenningu innan lögreglunnar fylgja einstakar áskoranir vegna hefðbundinna karlmennskuhugmynda og stigveldis innan stofnunarinnar.
Tilvist agnarsmáu mýflugunnar lúsmýs hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hér á landi seinustu ár. Þessar fíngerðu og illa sýnilegu flugur safnast margar saman á húð spendýra til að sjúga úr þeim blóð, eins og mörg hafa eflaust reynt á eigin...
Hækkandi lífaldur fólks og fjölgun í hópi aldraðra hefur í för með sér ýmsar áskoranir, ekki aðeins fyrir kerfi samfélagsins heldur einnig fyrir þau sem næst standa öldruðum einstaklingum.
„Við þurfum öll að borða til að halda góðri heilsu en neysla okkar verður einnig að vera í takt við þau umhverfisáhrif sem hljótast af henni. Því er svo mikilvægt að stuðla að ábyrgri neyslu þar sem jafnvægi milli heilsu, lífsgæða og góðrar...
Stundum er það þannig að lítil jólagjöf getur breytt lífinu, eða öllu heldur hún getur haft þannig áhrif að allt lífið tekur lit af gjöfinni. Þannig er það alla vega með Jón Emil Guðmundsson, lektor í stjarneðlisfræði við Háskóla Íslands. Þegar...
„Byltur eru lýðheilsuvandi meðal eldri einstaklinga um allan heim þar sem hættan á alvarlegum afleiðingum eftir byltu er mest í þessum hópi og þörfin fyrir markvisst og gagnreynt byltuvarnarstarf er því aðkallandi. Markmið byltuvarna er að fækka...
Tjaldurinn er einn af einkennisfuglum Íslands, svartur á kolli og baki en með hvíta bringu og langan appelsínugulan gogg sem hann notar til að sækja æti sem er ekki alls staðar það sama hjá tjöldum sem verpa hér. Hann hefur líka langa...
„Í dag er sífellt meiri áhersla lögð á samfélagslegt gildi rannsókna, hvort sem litið er til styrkjaumhverfisins eða stefnu háskóla, þar á meðal Háskóla Íslands. Það er því mikilvægt að rannsóknarniðurstöður og þróunarstarf tengt rannsóknum skili...
„Innan læknisfræðinnar er kæling notuð sem taugaverndandi meðferð við alvarlegum sjúkdómum, t.d. eftir súrefnisskort í fæðingu og hjartastopp.
„Rannsóknin ber heitið „Hulin þekking kvenna í kjölfar barnsburðar“ og með henni varpa ég ljósi á tímabilið í lífi kvenna eftir fæðingu barns og hvaða áhrif það hefur á mótun sjálfs þeirra,“ segir heimspekineminn Elín Ásbjarnardóttir Strandberg um rannsókn sem hún framkvæmdi fyrir skemmstu með styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna.