Edda
- Aðgangur ókeypis
Opinn fyrirlestur Cass R. Sunstein
Föstudagur 23. október 2026 kl. 10:00
Edda, Háskóli Íslands
Hvernig tryggjum við að velferð barna og dýra fái það vægi sem hún á skilið í ákvörðunum stjórnvalda? Harvard-prófessorinn og metsöluhöfundurinn Cass R. Sunstein tekur fyrir áleitnar spurningar á mótum hagfræði, lögfræði og opinberrar stefnumótunar.
Greiðsluvilji er algengur mælikvarði á ávinning í hagfræðilegu mati. Hvaða álitaefni vakna þegar velferð barna og dýra er metin út frá greiðsluvilja annarra? Og hvernig getur velferð þeirra sjálfra fengið viðeigandi vægi í matinu?
Öll eru velkomin.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!