Hvenær
30. október 2026
09:00 til 16:00
Hvar

Húsakynni Háskóla Íslands

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Ráðstefna Þjóðarspegilsins verður haldin 30. október 2026. Vettvangur þar sem fræðafólk ræðir brýn og áhugaverð samfélagsleg málefni líðandi stundar með upplýstum og uppbyggilegum hætti.

Ráðstefnan hefur verið haldin frá því árið 1994. Frá upphafi hefur verið lögð mikil áhersla á að hún sé ekki aðeins vettvangur fyrir fræðafólk að ræða hvert við annað heldur einnig vettvangur fyrir virkt samtal félagsvísindanna við samfélagið utan veggja háskólanna. Ráðstefnan er hluti af Þjóðarspeglinum, sem í heild nær yfir umfangsmeiri miðlun og kynningu á rannsóknum félagsvísinda. Þessi vefsíða er afrakstur vinnu í samræmi við þessa breyttu áherslu. 

Hvernig hefur samfélagið áhrif á hegðun fólks sem í því býr? Hvernig bregst fólk við breytingum og hvernig myndar það tengsl sín á milli? Þetta er meðal þeirra ótal spurninga sem rannsóknir í félagsvísindum fást við að svara. Viðfangsefnin eru fjölmörg: allt frá stjórnskipulagi og lögum til menningar, upplýsinga og fötlunar svo örfá dæmi séu tekin.  Flestar eiga þessar rannsóknir beint og ekki síður brýnt erindi við íslenskt samfélag.

Í samræmi við stefnu HÍ um aukinn sýnileika og virkara samtal fræðanna við samfélagið var ákveðið að ráðast í það verkefni að vinna markvisst að því að auka sýnileika rannsókna í félagsvísindum og stuðla að enn virkari samvinnu við samfélagið.  Í dag vísar hugtakið Þjóðarspegillinn því ekki einvörðungu til ráðstefnu sem haldin er einu sinni á ári heldur til vettvangs samtals félagsvísinda við samfélagið allt árið um kring.

Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil