Háskólatorg
Neðri hæð
- Aðgangur ókeypis
Háskóli Íslands stendur fyrir sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki dagana 7. október til 7. nóvember 2026. Á sýningunni eru ljósmyndir og skýringar sem varpa ljósi á afleiðingar kjarnorkuárásanna árið 1945 og stuðla að auknum skilningi á hörmungum kjarnorkuvopna og mikilvægi friðar og afvopnunar. Sýningin verður staðsett á neðri hæð Háskólatorgs og stendur til 7. nóvember 2026. Opnunartíma Háskólatorgs má sjá hér.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands mun opna sýninguna ásamt fulltrúum japönsku samstarfsaðilanna. Sýningin verður formlega opnuð miðvikudaginn 7. október 2026 kl. 12:00–13:00 í Veröld – húsi Vigdísar, á Heimasvæði tungumála (bókasafni á 2. hæð). Við opnunina mun Teruko Yahata halda erindi um reynslu sína frá Hiroshima, en hún var átta ára þegar kjarnorkuárásarnar áttu sér stað. Opnunarviðburðurinn er öllum opin.
Sýningin við Háskóla Íslands er hluti af Friðarviku í Reykjavík og sett upp í tengslum við stærri Hiroshima–Nagasaki sýningu, sem verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 6. október til 1. nóvember 2026. Þar verða meðal annars sýndir munir og söguleg gögn tengd árásunum, ljósmyndir, frásagnir eftirlifenda og boðið upp á sýndarveruleikabúnað.
Skipuleggjendur:
- Háskóli Íslands
- Hiroshima-borg
- Nagasaki-borg
- Reykjavíkurborg
Samstarfsaðilar:
- Sendiráð Japans á Íslandi
- Hiroshima National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb Victims
- Nagasaki National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb Victims
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!