Fólk situr fyrir utan Háskólatorg á björtum og sólríkum degi
Hvenær
1. október 2026 til 2 október 2026
09:00 to 13:00
Hvar

Edda

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Háskóli Íslands stendur fyrir 10. ráðstefnu norrænu deildar Society for Risk Analysis Europe fimmtudaginn 1. og föstudaginn 2. október í Eddu, húsi íslenskunnar. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Risk analysis in the Nordic area in a time of transition".

Aðalfyrirlesarar eru Katherine McComas (Cornell University), sem fjallar um áhættuskynjun og viðhorf almennings til jarðvarmavirkjana, og Matthias Kokorsch (Háskólasetur Vestfjarða), sem fjallar um framtíð loftslags- og áhættustjórnun á Íslandi.

Á ráðstefnunni munu um 30 fyrirlesarar kynna rannsóknir sínar, meðal annars um:

  • orkuskipti og traust almennings
  • viðbúnað við hamförum
  • varnir og lýðræðislegt viðnámsþol
  • hamfarir og ákvarðanatöku í óvissu
  • áhættustjórnun í afskekktum byggðum og eyjasamfélögum

Dagskrá og útdrætti má finna hér

Ráðstefnunni lýkur á föstudag með opinni hringborðsumræðu (12:50 til 13:50) um hvað smáþjóðir geta gert til að draga úr innlendri og hnattrænni áhættu, með dæmum frá Íslandi og Nýja-Sjálandi. Sá dagskrárliður er opinn öllum, óháð því hvort þeir eru skráðir á ráðstefnuna.

Þótt formlegur skráningarfrestur sé liðinn geta þeir sem hafa áhuga á að sækja ráðstefnuna, að hluta eða í heild, haft samband við Þórhall Inga Halldórsson á tih@hi.is.

SRA Nordic 2026: ráðstefna um áhættugreiningu
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil