Hvenær
14. október 2026
20:00 til 21:00
Hvar

Bílastæðið við Elliðárstöð

Nánar
  • Háskólanemar HÍ
Bæta við í dagatal

Komdu með í náttúrumiðað gönguhópastarf fyrir háskólanema sem byggir á skapandi nálgun í félagsráðgjöf.

Það eru 5. árs nemar í félagsráðgjöf til starfsréttinda sem skipuleggja þennan viðburð. Þriðja gangan af þremur fer fram miðvikudaginn 14. október nk.

Markmið verkefnisins er að efla félagsleg tengsl og vellíðan innan háskólasamfélagsins. Ganga og útivera eru nýttar sem vettvangur fyrir óformleg samskipti, tengslamyndun og ígrundun. Með því að færa hópastarfið út fyrir hefðbundið rými er leitast við að skapa aðgengilegt og opið umhverfi þar sem hreyfing, náttúra og félagsleg samvera styðja við hópferlið. Hópurinn hittist í þrjú skipti og verður hvert skipti byggt upp í kringum ákveðið þema sem tengist félagslegum tengslum, námslífi og vellíðan.

Skref saman
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil