Árnagarður
Stofa 101
- Aðgangur ókeypis
Seigla barna - hvernig byggjum við hann upp?
Seigla hjálpar börnum að takast á við áskoranir, breytingar og mótlæti og byggja upp trú á eigin getu. Í fræðslunni verður fjallað um hvernig við getum í daglegu lífi stutt við seiglu barna, styrkt sjálfsmynd þeirra og sjálfstraust og kennt þeim að takast á við mistök og erfiðar tilfinningar. Skoðað verður hvernig við getum verið til staðar fyrir börnin okkar án þess að taka fram fyrir hendurnar á þeim og þannig hjálpað þeim að verða sjálfstæðir og öruggir einstaklingar.
Að fyrirlestrinum standa 5.árs meistaranemar í félagsráðgjöf til starfsréttinda: Jenný Magnúsdóttir, Júlía Línberg Ingvaldsdóttir og Sara Rós Guðmundsdóttir
Athugið að fyrirlestur fer fram á ensku:
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!