Saga - MVS
Hvenær
8. október 2026
10:30 til 12:00
Hvar

Saga

S-338

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Gestafyrirlestur Anne Burke, prófessors við Memorial University of Newfoundland í Kanada

Hvaða hlutverki gegnir leikur í námi barna - og hvernig getum við tryggt að leikurinn haldi sessi sínum í menntun á tímum aukinnar áherslu á námsárangur og mælanlegar niðurstöður?

Anne Burke, prófessor við Memorial University of Newfoundland í Kanada, flytur gestafyrirlestur um leik sem kennslufræði og mikilvægi hans fyrir nám og þroska barna. Hún fjallar meðal annars um hvernig leikur styður við skapandi hugsun, lausnaleit, seiglu og læsi og hvaða áskoranir kennarar standa frammi fyrir þegar kemur að því að skapa rými fyrir leik í skólastarfi.

Anne mun jafnframt kynna Discovery Play Centre (https://www.discoveryplaycentre.com/) við Faculty of Education í Memorial University og segja frá rannsóknum og þróunarverkefnum sem þar hafa verið unnin á sviði leikmiðaðrar kennslufræði.

Um Anne Burke

Dr. Anne Burke er prófessor í læsisfræðum, námi ungra barna og stafrænum miðlum við School of Education, Memorial University of Newfoundland. Hún leiðir Discovery Play Centre við Faculty of Education.

Rannsóknir hennar snúa meðal annars að leikheimi barna, rödd þeirra og áhrifamætti, sjónrænu læsi, barnabókmenntum, fjölháttalæsi og stafrænum heimi barna. Í rannsóknum sínum leggur hún einnig áherslu á félagslegt réttlæti og samstarf við skóla, menningarstofnanir og leik- og grunnskóla.

Öll áhugasöm eru velkomin

Reimagining Play: Navigating the Contemporary Challenges in Early Childhood Education
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil