- Aðgangur ókeypis
Málþing um Rannsóknaumhverfið á Íslandi fer fram 1. október nk. í sal Þjóðminjasafns Íslands kl. 15-17. Málþingið er á vegum Vísindafélags Íslands og Félags prófessora við ríkisháskóla.
Dagskrá:
1. Ávarpsorð: Rúnar Vilhjálmsson, forseti Vísindafélags Íslands
2. Kristján Guy Burgess, sérfræðingur í Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu: Stefnur um rannsóknir, vísindi og háskóla
3. Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís: Rannsóknaumhverfið á Íslandi í evrópsku samhengi
4. Erna Magnúsdóttir, dósent og fyrrverandi forseti Vísindafélags Íslands: Rannsóknaumhverfið og uppbygging Lífvísindaseturs
5. Sóllilja Bjarnadóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands: Er pláss fyrir næstu kynslóð vísindafólks? Áskoranir og tækifæri doktorsnema á Íslandi.
Að loknum erindum verða umræður um efnið og fyrirlesarar svara spurningum.
Kaffiveitingar eru í boði að erindum loknum.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!