1920__KRI0094_2.jpg
Hvenær
28. september 2026
15:00 til 16:30
Hvar

Tæknigarður

Stofa 227

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Heiti ritgerðar: Mat á nauðsynlegum þáttum fyrir þróun vetnisþyrpinga til að þjóna haftengdri starfsemi á Íslandi (An evaluation of the necessary factors for establishing hydrogen hubs to serve the maritime sector in Iceland)

Nemandi: Cary Kincaid Corcoran

Doktorsnefnd:
Dr. Brynhildur Davíðsdóttir (umsjónarkennari)
Dr. Lára Jóhannsdóttir (leiðbeinandi)
Dr. David Cook

Ágrip

Framleiðsla og notkun orkugjafa á Íslandi sem byggja á vetni og vetnistengdum orkugjöfum (HBFs) getur stuðlað að orkuskiptum og hjálpað þjóðinni að uppfylla innlend og alþjóðleg markmið sín, þ.m.t. að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá haftengdri starfsemi, að ná kolefnishlutleysi og að verða óháð jarðefnaeldneyti árið 2040. Þó hefur “pattstaða græns vetnis” (e. Green Hydrogen Deadlock), sem birtist sem innbyrðis tengdar hindranir á milli framleiðslu og notkunar vetnis og HBFs, hægt á þróun slíkra orkugjafa. Vetnisþyrping (e. hydrogen hub)er nýlegt hugtak sem samþættir framleiðslu og notkun á vetni og HBFs innan landfræðilega afmarkaðs netverks.Mögulegt er að slík nálgun gæti hjálpað til við að yfirstíga innbyrðis tengdar hindranir sem leiða til slíkrar pattstöðu.Þessi tilviksrannsókn byggir á haghafa nálgun, þar sem þrjár mögulegar staðsetningar fyrir vetnisþyrpingar á Íslandi eru skoðaðar, og nauðsynlegir þættir fyrir framleiðslu og notkun vetnis og HBFs í haftengdri starfsemi eru metnir. Niðurstöður rannsóknarinnar birtast í fjórum greinum þar sem (1) þróaðir eru sjálfbærnivísar fyrir orkuþróun sem nota má við greiningu á þróun vetnisþyrpinga, (2) hvatar og hindranir eru metnir byggt á 36 hálfstöðluðum viðtölum við íslenska hagsmunaaðila , (3) samþættir hvatar og hindranir við þróun og innleiðingu vetnis og HBFs á Norðurlöndum eru metnir, byggt á vinnustofum með norrænum hagsmunaaðilum, og (4) nauðsynlegar aðgerðir stjórnvalda eru metnar byggt á gloppugreiningu á stjórntækjum hins opinbera. Vísindalegar meginafurðir verkefnisins eru: i) vísar fyrir sjálfbæra orkuþróun sem tengir saman sjálfbæran rekstur og sjálfbæra orkuþróun sem hægt er að beita á vetnisþyrpingar; ii) mótun á nýjum ramma fyrir greiningu á hvötum og hindrunum fyrir þróun og notkun vetnis og HBFs sem nær yfir tvíátta og innbyrðis tengdar hindranir. Dæmi um slíkar hindranir eru hár kostnaður og skortur á samkeppnistöðu, vöntun á eftirspurn og aðgerðum hins opinbera; og, iii) mat á nauðsynlegum aðgerðum hins opinbera sem mögulega gæti leyst “pattstöðu græns vetnis” á Íslandi og Norðurlöndunum svo sem með þróun vetnisyrpinga.

Miðbiksmat í umhverfis- og auðlindafræði - Cary Kincaid Corcoran
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil