Hvenær
14. október 2026
16:00 til 18:00
Hvar

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Japönsk fræði við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands og sendiráð Japans á Íslandi býður til sérstakrar sýningar á japönsku kvikmyndinni „Prayer: Figments of Nagasaki“ miðvikudaginn 14. október klukkan 16:00 í Auðarsal í Veröld.

Fyrir sýningu kvikmyndarinnar er gestum velkomið að taka þátt í lítilli vinnusmiðju þar sem kynntar eru japönsku listgreinarnar origami og chigiri-e (listform þar sem notaðir eru rifnir pappírsbútar).

Masao Ieki framleiðandi og Katsuya Matsumura leikstjóri myndarinnar fjalla um gerð hennar áður en sýning hefst. Myndin gerist í Nagasaki árið 1957, tólf árum eftir kjarnorkuárásina, og fjallar um tvær kaþólskar konur sem bera enn líkamleg og andleg ör stríðsins. Myndin varpar ljósi á langvarandi áhrif kjarnorkuárásarinnar ásamt trú og sögu kristins samfélags í Nagasaki.

Að sýningu lokinni verður opnað á spurningar frá áhorfendum úr sal.

Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn.

Kvikmyndasýning - Prayer: Figments of Nagasaki
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil