Saga
Saga 063-trésmíðastofa
- Á ensku
Kennsluakademía Opinberu háskólanna og Kennslumiðstöð HÍ efna til kennslukaffis mánudaginn, 12 október, kl.13:30-15:00
Staðsetning: Saga, S-063
Þessi gagnvirka vinnustofa kynnir fyrir þátttakendum LEGO® Serious Play® sem skapandi og íhugandi aðferð til að kanna spurningar sem tengjast kennslu, námi og menntun. Á ensku.
Með því að byggja líkön og taka þátt í skipulögðum umræðum munu þátttakendur læra um hvernig aðferðin getur stutt við ígrundun, samræður og dregið fram ólík sjónarmið í námi og kennslu
Vinnustofunni verður stýrt af dr. Briony Supple, lektor í Deild náms og kennslu við University College Cork á Írlandi. Briony er einnig vottaður LEGO® Serious Play® leiðbeinandi og þjálfari. Vinnustofan er hluti af heimsókn til Háskóla Íslands sem styrkt er af Erasmus+
Leiðbeinandi: Dr. Briony Supple, University College Cork
LinkedIn: https://www.linkedin.com/in/brionysupple/
Rannsóknarprófíll: https://research.ucc.ie/en/persons/briony-supple/
Við hvetjum alla áhugasama um að skrá sig. Einungis 20 laus pláss.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!