Hvenær
29. september 2026
12:00 til 13:00
Hvar

Edda

Fyrirlestrasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Hildur Ploder Vigfúsdóttir, pappírsforvörður á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Heimur í orðum.

Staður og stund: Þriðjudagurinn 29. september kl. 12 í fyrirlestrasal Eddu.

Fyrirlesturinn fjallar um sögu og þróun handritaviðgerða á Íslandi á 20. öld. Sjónum verður beint að einstaklingum sem sinntu viðgerðum á handritum hér á landi en einnig verður farið yfir hvaða aðferðum og tækni var beitt, hvaða efni voru notuð og hvernig vinnubrögð breyttust á þessari viðburðaríku öld.

Efni fyrirlestrarins verður skýrt með dæmum úr handritum sem Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur lánað á sýninguna Heimur í orðum.

Í góðri trú. Íslenskar handritaviðgerðir á 20. öld
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil