Landsbókasafn - Háskólabókasafn
- Aðgangur ókeypis
Leifur Reynisson sagnfræðingur heldur fyrirlestur í sal Landsbókasafnsins fimmtudaginn 1. október kl. 12:05. Fyrirlesturinn se,m nefnist „Hernámsæskan“, byggist á nýútkominni bók Leifs þar sem hann gerir grein fyrir áhrifum seinni heimsstyrjaldar á íslenskt æskufólk.
Hvernig upplifðu Íslendingar hernámsárin, hver voru samskiptin við herinn og hvaða breytingar urðu á dægurmenningu landsmanna? Leitast verður við að svara þessum spurningum með æskuna í fyrirrúmi en rök verða færð fyrir því að þarna liggi rætur íslenskrar unglingamenningar. Á fyrirlestrinum verður sýndur fjöldi mynda sem prýða bókina.
Tilboðsverð verður á bókinni, kr. 7.000. ATH! Ekki verður posi á staðnum, en bæði er hægt að leggja inn á útgáfuna í gegnum síma og svo að sjálfsögðu greiða með peningum.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!