Hvenær
15. október 2026
15:00 til 17:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðarsal

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Dr. Enrique del Acebo Ibáñez prófessor í félagsfræði við University of Salvador og University of Buenos Aires í Argentínu hlýtur heiðursdoktorsnafnbót Félags-, mannfræði- og þjóðfræðideildar fyrir frjótt og farsælt samstarf sitt við Háskóla Íslands.

Sérsvið prófessors Enrique del Acebo Ibáñez eru fjölbreytt og hverfast um félags- og hugvísindi. Hann hefur lengi verið í samstarfi við fjölmarga kennara í HÍ bæði af Félagsvísinda- og Hugvísindasviði. Enrique del Acebo Ibáñez hefur reglulega komið til Íslands í akademískum tilgangi og bæði kennt og haldið fyrirlestra hér við skólann og við Háskólann á Akureyri.

Árið 2003 var undirritaður samstarfssamningur milli HÍ og Salvador-háskóla, ekki síst fyrir tilstill dr. Acebo. Í krafti samningsins hafa tugir nemenda frá HÍ dvalið við skólann ytra og íslenskir fræðimenn dvalið í Argentínu í boði þarlendra háskóla.

Enrique del Acebo Ibáñez lauk doktorsprófi í félags- og stjórnmálafræði frá háskólanum Complutensis University í Madrid árið 1987. Auk þess að vera prófessor við tvo háskóla í Buenos Aires er hann fræðimaður innan vébanda vísindaakademíu Argentínu – CONISET.

Enrique del Acebo Ibáñez hefur ritað um það bil 30 bækur og birt um 200 fræðigreinar. Menningar- og fræðasamfélagið hefur ríkulega notið góðs af frumkvæði og ræktarsemi hans við íslenskt samfélag ekki síst Háskóli Íslands.

Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil