Aðalbygging
Hátíðasalur
- Aðgangur ókeypis
Fimmtudaginn 22. október ver Kristín Hulda Kristófersdóttir doktorsritgerð sína í sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Mat á réttmæti PHQ-9 skora: Fjölaðferða próffræðileg athugun á breytileika í svörum sem ekki skýrist af alvarleika þunglyndis. Evaluating the Validity of PHQ-9 Scores: A Multi-Method Psychometric Investigation of Sources of Variance Beyond Depression Severity.
Andmælendur eru dr. Patrick Sturgis, prófessor við London School of Economics and Political Science, og Linda Bára Lýðsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Fanney Þórsdóttir, prófessor. Auk hennar sátu í doktorsnefnd Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor, Vaka Vésteinsdóttir, dósent og Þorlákur Karlsson, sérfræðingur.
Heiða María Sigurðardóttir, prófessor og deildarforseti Sálfræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 10.00.
Ágrip
Patient Health Questionnaire-9 (PHQ-9) er einn mest notaði sjálfsmatskvarðinn til að meta þunglyndiseinkenni í klínísku starfi og rannsóknum. Skor á kvarðanum eru gjarnan túlkuð sem vísbending um alvarleika þunglyndis, en sú túlkun ræðst af því að hve miklu leyti svör endurspegla þunglyndiseinkenni fremur en aðra áhrifaþætti. Markmið ritgerðarinnar var að meta réttmæti PHQ-9 skora með því að rannsaka breytileika í svörum sem ekki skýrist af alvarleika þunglyndis, byggt á fjórum rannsóknum með íslenskum úrtökum.
Í grein I voru próffræðilegir eiginleikar fyrirliggjandi íslenskrar þýðingar PHQ-9 metnir með Mokken-greiningu og ítarviðtöl notuð til að kanna mögulegar skýringar á veikri virkni einstakra atriða. Í grein II var lögð fram endurbætt íslensk útgáfa PHQ-9 og próffræðilegir eiginleikar hennar metnir með Mokken-greiningu. Í grein III var aðferð paraðs samanburðar notuð til að kanna hvort atriði PHQ-9 væru misviðkvæm, það er að segja hversu óþægilegt svarendum þætti að greina frá þeim. Í grein IV voru þáttalíkön notuð til að kanna hvort félagslega æskileg svörun stuðlaði að kerfisbundnum breytileika í svörum við PHQ-9 og hvort slík áhrif væru breytileg eftir viðkvæmni atriða.
Upprunalega íslenska útgáfan af PHQ-9 hafði ófullnægjandi skalanleika, sem tengdist meðal annars þýðingarvillum, tvíræðu orðalagi, margbotna atriðum og skörun einkenna. Endurskoðaða þýðingin hafði betri próffræðilega eiginleika, með sterkari skalanleika og skýrari röðun svarenda eftir þunglyndisvíddinni. Atriði PHQ-9 reyndust jafnframt misviðkvæm: þátttakendum þótti almennt óþægilegra að greina frá hugrænum/tilfinningalegum einkennum en líkamlegum. Að lokum reyndist félagslega æskileg svörun vera uppspretta aðferðabreytileika sem tengdist lægri skorum á PHQ-9 en skýrði þó minni breytileika en alvarleiki þunglyndis sjálfur. Þessi áhrif voru breytileg milli atriða en fylgdu ekki viðkvæmni þeirra.
Niðurstöðurnar benda til þess að skor á PHQ-9 endurspegli fleira en alvarleika þunglyndis eingöngu og styðja varfærna, samhengisbundna túlkun á summuskorum kvarðans. Í ritgerðinni er undirstrikað hvernig hönnun matstækis, innihald atriða, þýðing og svarferli móta merkingu skora í sálfræðilegu mati.
Abstract
The Patient Health Questionnaire-9 (PHQ-9) is one of the most widely used self-report measures of depressive symptoms in clinical practice and research. Its scores are often interpreted as indicators of depression severity, yet this interpretation depends on the extent to which responses reflect depressive symptomatology rather than other influences. This thesis evaluated the validity of PHQ-9 scores by examining sources of variance beyond depression severity, drawing on four studies with Icelandic samples.
Paper I examined the psychometric properties of an existing Icelandic translation of the PHQ-9 using Mokken scale analysis and used cognitive interviews to investigate possible sources of weak item functioning. Paper II introduced a revised Icelandic translation and evaluated its psychometric properties using Mokken scale analysis. Paper III used the method of paired comparisons to examine whether PHQ-9 items differ in perceived sensitivity, that is, how uncomfortable respondents find it to disclose them. Paper IV modeled socially desirable responding as a source of method variance in the PHQ-9 to examine whether it systematically influences item responses and whether that influence varies with item sensitivity.
The original Icelandic PHQ-9 showed suboptimal scalability, associated with translation errors, ambiguous wording, multi-barreled items, symptom overlap, and other response-process issues. The revised translation performed better psychometrically, with stronger scalability and a more coherent ordering of respondents along the depression severity continuum. PHQ-9 items also differed systematically in perceived sensitivity: cognitive/affective items were generally judged more uncomfortable to disclose than somatic items. Finally, socially desirable responding was a source of method variance, associated with lower symptom reporting while accounting for considerably less variance than depression severity. This effect varied across items but did not correspond to their sensitivity.
Together, the findings suggest that PHQ-9 scores reflect more than depression severity alone and support a cautious, context-sensitive interpretation of PHQ-9 sum scores. The thesis underscores how instrument design, item content, translation, and response processes shape the meaning of scores in psychological measurement.
Um doktorsefnið
Kristín Hulda Kristófersdóttir fæddist í Reykjavík árið 1995. Hún lauk stúdentsprófi af félagsfræðabraut Menntaskólans við Hamrahlíð árið 2014, BS-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands 2018 og MS-gráðu í hagnýtri sálfræði frá sama skóla 2020. Hún hóf doktorsnám við Háskóla Íslands á haustmisseri 2020. Samhliða doktorsnáminu hefur Kristín Hulda unnið að stöðlun vitsmunaþroskaprófa fyrir börn á Íslandi ásamt því að kenna við Sálfræðideild Háskóla Íslands.
Móðir Kristínar Huldu er Unnur Stefánsdóttir og stjúpfaðir hennar er Jón Bjarki Jónsson. Faðir Kristínar er Kristófer Sigvaldi Snæbjörnsson og stjúpmóðir hennar er Ólöf Fanný Hjartardóttir. Maki Kristínar Huldu er Sigurður Sveinn Þorkelsson og sonur þeirra er Cýrus Dan.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!