1920__XP23633.jpg
Hvenær
8. október 2026
13:00 til 16:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

María Jónasdóttir ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Vörnin fer fram fimmtudaginn 8. október 2026 kl. 13.00 í Hátíðasal Háskóla Íslands.

Ritgerðin ber heitið Flæðandi áhrif stefnubreytinga: Námskrá, þekking og jöfn tækifæri til menntunar.

Um doktorsritgerðina

Doktorsverkefnið fjallar um hvernig stefnu-, stjórnsýslu- og námskrárbreytingar í íslenskum framhaldsskólum hafa mótað skipulag og innihald stúdentsprófsbrauta og þar með tækifæri nemenda til að tileinka sér fræðilega þekkingu sem undirbýr þá fyrir háskólanám. Um er að ræða breytingar á borð við dreifstýringu, aukna markaðsstýringu framhaldsskólastigsins, innleiðingu hæfnimiðaðrar námskrár og styttingu námsbrauta til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú. Verkefnið byggir á gagnrýnum menntastefnufræðum og námskrárfræði í anda félagslegrar raunhyggju og beinir sjónum að kerfislegum skilyrðum sem móta aðgengi nemenda að fræðilegri þekkingu.

Ritgerðin byggir á þremur rannsóknargreinum og fjölbreyttum rannsóknargögnum. Fyrsta greinin fjallar um upplifun háskólakennara af undirbúningi nemenda fyrir háskólanám eftir styttingu námstíma til stúdentsprófs, byggt á viðtölum við sextán reynda háskólakennara. Í annarri greininni er skipulag og innihald þriggja hefðbundinna stúdentsprófsbrautalýsinga, í tungumálum, náttúru- og félagsvísindagreinum, kortlagt. Samanburðurinn nær yfir tímabilið fyrir og eftir dreifstýringu námskrárgerðar, innleiðingu hæfnimiðaðrar námskrár og styttingu námstíma til stúdentsprófs. Þriðja greinin fjallar um framboð námsgreina og -áfanga eftir skólategundum og staðsetningu skóla, byggt á spurningakönnun sem send var skólastjórnendum og rýnihópaviðtölum við áfangastjóra.

Niðurstöður verkefnisins sýna umtalsverðan breytileika í skipulagi og innihaldi stúdentsprófsbrauta í kjölfar þess að ábyrgð á námskrárgerð var færð til einstakra skóla sem starfa við ólíkar aðstæður. Í því samhengi skipta nemendafjöldi og félagsleg samsetning skóla miklu máli en einnig aðgengi að sérmenntuðum kennurum. Þær sýna að aðgangur nemenda að fræðilegri þekkingu ráðist í auknum mæli af því hvaða framhaldsskóla þeir sækja. Þetta á einkum við um námsgreinar á borð við stærðfræði, náttúruvísindi og erlend tungumál (önnur en ensku), þar sem uppbygging þekkingar krefst stigvaxandi og samfelldrar framvindu náms. Niðurstöðurnar sýna einnig að rekstrarlegar og fjárhagslegar forsendur ráða oft meiru um mótun námsframboðs en meginreglur námskrárfræði um mörk námsgreina, röðun námsefnis og stigvaxandi framvindu, sem og aðrar þekkingarfræðilegar kröfur einstakra námsgreina. Loks benda niðurstöðurnar til þess að ójöfn tækifæri nemenda stafi einkum af ólíku aðgengi nemenda að fræðilegri þekkingu fremur en af getu þeirra eða vali. Þær sýna hvernig kerfisleg skipan, stjórnsýsla og fjárveitingar innan menntakerfisins hafa bein áhrif á þekkingarfræðilegt aðgengi nemenda og undirbúning þeirra fyrir háskólanám, og undirstrika enn fremur mikilvægi þess að skoða sérstaklega hlutverk ríkisins í að tryggja aðgang nemenda að sérhæfðri þekkingu.

Um doktorsefnið:
María Jónasdóttir fæddist í Lundi í Svíþjóð árið 1985. Hún lauk BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2009, meistaragráðu í lögfræði árið 2011 og M.Ed.-gráðu í menntun framhaldsskólakennara árið 2019 frá sama skóla. María starfaði sem lögfræðingur og síðar framhaldsskólakennari áður en hún hóf störf sem doktorsnemi og aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands árið 2020. María er gift Orra Jökulssyni, hjúkrunarfræðingi. Börn þeirra eru Katrín, Hlín og Jökull.

Andmælendur eru dr. Anniken Hotvedt Sundby, dósent við Háskólann í Suðaustur-Noregi, og dr. Laura Perry, prófessor við Murdoch-háskóla í Ástralíu.

Aðalleiðbeinandi er dr. Elsa Eiríksdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.

Meðleiðbeinandi er dr. Guðrún Ragnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Auk leiðbeinenda sátu í doktorsnefnd dr. Gunnlaugur Magnússon, prófessor við Uppsala-háskóla, og dr. Valgerður S. Bjarnadóttir, dósent við Háskóla Íslands.

Athöfninni stýrir Jón Yngvi Jóhannsson, varadeildarforseti Deildar faggreinakennslu.

Öll eru velkomin.

Doktorsvörn í menntavísindum – María Jónasdóttir
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil