Aðalbygging
Hátíðasalur
- Aðgangur ókeypis
Miðvikudaginn 28. október ver Ingibjörg Magnúsdóttir doktorsritgerð sína í líftölfræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Geðrænar, líkamlegar og hugrænar birtingarmyndir eftirkasta COVID-19: Niðurstöður úr lýðgrunduðum ferilrannsóknum. Mental, physical, and cognitive manifestations of post COVID-19 condition: Evidence from population-based cohorts and national registers.
Andmælendur eru dr. Frode Forland, forstöðumaður við Norwegian Institute of Public Health (NIPH), og dr. Nisreen A Alwan, prófessor við University of Southampton.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Thor Aspelund og meðleiðbeinandi var Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Arna Hauksdóttir, prófessor, Elías Sæbjörn Eyþórsson, rannsóknarmaður og Fang Fang, prófessor.
Stefán Þ. Sigurðsson, prófessor og varadeildarforseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 9.00.
Ágrip
COVID-19 faraldurinn vakti áhyggjur af langvarandi heilsufarsafleiðingum eftir sýkingu, en þekking á langtímaafleiðingum í almennu þýði, einkum meðal einstaklinga sem ekki lögðust inn á sjúkrahús, hefur verið takmörkuð. Markmið þessarar ritgerðar var að rannsaka langtíma afleiðingar COVID-19 á andlega, líkamlega og hugræna heilsu í almennu þýði og meta hvernig þær tengjast alvarleika bráðra veikinda.
Ritgerðin byggir á fjórum rannsóknum þar sem nýtt voru bæði hóprannsóknir og heilbrigðisgögn frá Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Niðurstöðurnar sýndu að einstaklingar sem höfðu greinst með COVID-19 voru líklegri til að upplifa þunglyndiseinkenni, svefnvandamál og langvarandi líkamleg einkenni en þeir sem ekki höfðu greinst. Einnig reyndust þeir í aukinni hættu á geðröskunum og notkun geðlyfja eftir sýkingu. Á hinn bóginn fundust engin skýr heildartengsl milli COVID-19 greiningar og skertrar hugrænnar virkni.
Alvarleiki veikinda reyndist lykilþáttur í öllum rannsóknum. Einstaklingar sem veiktust alvarlega og voru rúmliggjandi í sjö daga eða lengur sýndu aukna áhættu á viðvarandi andlegum, líkamlegum og hugrænum einkennum sem gátu varað í meira en tvö ár eftir greiningu. Hjá einstaklingum með væg veikindi var áhættan hins vegar lítil sem engin.
Niðurstöðurnar auka skilning á eftirkvillum COVID-19 og undirstrika mikilvægi þess að taka mið af alvarleika bráðra veikinda við rannsóknir, eftirfylgd og klínískt mat á langtímaafleiðingum sjúkdómsins.
Abstract
The COVID-19 pandemic raised concerns about the long-term health consequences of infection, yet evidence from general population studies with extended follow-up has remained limited. The aim of this thesis was to investigate long-term mental, physical, and cognitive health outcomes following COVID-19 and to examine the role of acute illness severity in these outcomes.
The thesis comprises four studies based on cohort and population-wide health data from Iceland and other Nordic countries. Individuals diagnosed with COVID-19 were more likely to experience depressive symptoms, poor sleep quality, and persistent physical symptoms compared with those not diagnosed. They were also at increased risk of psychiatric disorders and psychotropic medication use following infection. In contrast, no overall association was observed between COVID-19 diagnosis and impaired cognitive function.
Across all studies, acute illness severity emerged as a key determinant of long-term outcomes. Individuals with severe illness, defined by being bedridden for seven days or longer, experienced substantially higher risks of persistent mental, physical, and cognitive symptoms that could last for more than two years after diagnosis. In contrast, individuals with mild illness showed little to no increased risk.
These findings improve understanding of post COVID-19 condition and highlight the importance of considering acute illness severity in research, clinical evaluation, and long-term follow-up after COVID-19.
Um doktorsefnið
Ingibjörg Magnúsdóttir er fædd árið 1989 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð árið 2009, B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði árið 2015 frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í líftölfræði frá sama skóla árið 2021. Ingibjörg hóf doktorsnám við Háskóla Íslands árið 2021.
Foreldrar Ingibjargar eru Ellý Katrín Guðmundsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi borgarritari Reykjavíkurborgar (lést 2024), og Magnús Karl Magnússon, læknir og prófessor. Sambýliskona Ingibjargar er Beatrice Eriksson félagsráðgjafi og sonur þeirra er Almar Elí.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!