Aðalbygging
Hátíðasalur
- Aðgangur ókeypis
Mánudaginn 19. október ver Jenny Lorena Molina Estupiñan doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Efling ónæmissvara nýbura með ólíkum bólusetningarleiðum: Nýstárlegir ónæmisglæðar og slímhúðarbólusetning. Enhancing neonatal immune responses with different vaccination strategies: Novel adjuvants and mucosal immunization.
Andmælendur eru dr. Ed C. Lavelle, prófessor við Trinity College í Dublin, Írlandi, og dr. Sören E. Degn, dósent við Líf- og læknisfræðideild Háskólans í Árósum, Danmörku.
Umsjónarkennari var Ingileif Jónsdóttir, prófessor emerita, og leiðbeinandi var Stefanía P. Bjarnarson, dósent. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Jóna Freysdóttir, prófessor og Þórunn Ásta Ólafsdóttir, dósent.
Magnús Karl Magnússon, prófessor, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.
Ágrip
Bólusetningar eru ein áhrifaríkasta forvörnin til verndunar gegn smitsjúkdómum. Ungbörn eru sérstaklega viðkvæm fyrir alvarlegum sýkingum á fyrstu mánuðum ævinnar, meðan hefðbundnar ungbarnabólusetningar veita oftast nær ekki fullnægjandi vernd. Bólusetning fljótt eftir fæðingu gæti stytt þetta viðkvæma tímabil, en bólusetning nýbura er ekki einföld þar sem vanþroskað ónæmiskerfi þeirra bregst öðruvísi við bólusetningum en ónæmiskerfi eldri barna og fullorðinna, oftast með daufari og skammlífari mótefnasvörum.
Í þessari rannsókn voru áhrif bólusetningarleiða og nýstárlegra ónæmisglæða á ónæmissvör nýbura könnuð. Notað var nýburamúsalíkan til að bera saman áhrif bólusetningar um nefslímhúð og stungubólusetningar undir húð á þroskun, virkjun B-frumna og langlífi mótefnaseytandi B-frumna. Skammtasparandi áhrif ólíkra ónæmisglæða á bóluefnið voru einnig metin. Í rannsókninni voru metin ónæmissvör við bóluefnum gegn pneumókokkum og inflúensu.
Niðurstöðurnar sýna að bólusetningarleiðin hefur afgerandi áhrif á hraða og eðli ónæmissvara nýburamúsa. Bólusetning um nefslímhúð olli hraðari virkjun B-frumna og sérhæfingu plasmafrumna og flýtti fyrir myndun lifunarsvæða fyrir plasmafrumur í beinmerg. Þessu fylgdi bæði langvinnari útbreitt IgG mótefnasvörun og viðvarandi IgA svörun í slímhúðum, sem undirstrikar möguleika slímhúðarbólusetninga til að veita vernd gegn öndunarfærasýkingum.
Rannsóknin sýndi einnig að nokkrir nýstárlegir ónæmisglæðar höfðu veruleg skammtasparandi áhrif á bóluefni en viðhalda jafnframt myndun verndandi mótefnasvara gegn pneumókokkum og inflúensu.
Í heild sýna niðurstöður rannsóknarinnar að markvisst val á bólusetningarleiðum og ónæmisglæðum getur yfirunnið mikilvægar takmarkanir í ónæmissvörum nýburamúsa. Þær veita nýjar upplýsingar sem geta nýst við þróun áhrifaríkari bólusetninga ungviðis.
Abstract
Vaccination is one of the most effective tools for preventing infectious diseases. Infants remain particularly vulnerable to severe infections during the first months of life, when routine childhood vaccinations may not yet provide sufficient protection. Vaccinating soon after birth could help shorten this vulnerable period, but neonatal vaccination is challenging because their poorly developed immune system responds differently from that of older children and adults, often resulting in weaker and shorter-lived antibody responses.
In this project, the effects of immunization route and novel adjuvants on neonatal immune responses were investigated. Using a neonatal mouse model, the effects of intranasal and subcutaneous immunization on the development, activation of B cells and long-term survival of antibody-producing B cells were compared. The vaccine dose-sparing capacity of different adjuvants was also evaluated. The studies focused on responses to vaccines against Streptococcus pneumoniae and influenza.
The results demonstrate that the route of vaccination strongly influences the timing and quality of neonatal immune responses. Intranasal vaccination promoted earlier B cell activation and plasma cell differentiation and accelerated the establishment of supportive survival environments in the bone marrow. This was associated with sustained systemic IgG antibody responses as well as persistent mucosal IgA responses, highlighting the potential of mucosal vaccination to provide protection at respiratory sites of infection.
The results also demonstrated substantial vaccine dose-sparing effects of several novel adjuvants, still maintaining protective antibody responses against pneumococcal and influenza vaccines.
Together, these results show that combining appropriate immunization routes with effective adjuvants can overcome important limitations of neonatal immunity and provide new evidence that may contribute to the development of more effective vaccination strategies for the youngest population.
Um doktorsefnið
Jenny Molina Estupiñán fæddist í Valencia í Venesúela árið 1988. Hún lauk BS-gráðu í líffræði frá Háskólanum í Carabobo í Venesúela 2009. Að því loknu hélt hún til framhaldsnáms á Spáni þar sem hún lauk meistaragráðu í hitabeltis-sníkjudýrasjúkdómum frá Háskólanum í Valencia 2013 og meistaragráðu í sameinda- og frumulíffræði frá Universidad Autónoma í Madrid 2014.
Jenny hóf doktorsnám við Háskóla Íslands árið 2019. Doktorsrannsókn hennar hefur beinst að leiðum til að efla ónæmissvör við bólusetningum snemma á ævinni, með sérstakri áherslu á ný ónæmisglæðaefni og bólusetningu um slímhúð. Rannsóknir hennar hafa aukið þekkingu á því hvernig mismunandi bólusetningaraðferðir geta eflt ónæmissvar á fyrstu stigum ævinnar.
Samhliða doktorsnáminu hefur Jenny tekið virkan þátt í kennslu í ónæmisfræði við Háskóla Íslands, auk þess að sinna þjálfun og leiðbeiningu nemenda, og þannig lagt sitt af mörkum bæði til rannsókna og menntunar næstu kynslóðar vísindafólks.
Foreldrar Jenny eru Julio Molina og María Rosa Estupiñan og sonur hennar er Daniel Gunnar fæddur árið 2022.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!