Aðalbygging
Hátíðasalur
- Aðgangur ókeypis
Fimmtudaginn 29. október ver Telma Huld Ragnarsdóttir doktorsritgerð sína í læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Bráður nýrnaskaði á bráðamóttöku: Áhættuþættir, útkoma og horfur sjúklinga með vægar breytingar á nýrnastarfsemi. Community-acquired acute kidney injury: Risk factors, outcomes and the prognostic significance of small changes in serum creatinine.
Andmælendur eru dr. Eric Hoste, prófessor við Ghent University og Ghent University Hospital í Gent, Belgíu, og dr. Marie Evans, prófessor við Karolinska Institutet og Karolinska University Hospital í Stokkhólmi.
Umsjónarkennari var Runólfur Pálsson, prófessor og leiðbeinandi var Ólafur Skúli Indriðason, sérfræðilæknir. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Margrét Ólafía Tómasdóttir, lektor, Vicente Sanchez-Brunete, sérfræðilæknir og Ólafur Samúelsson, sérfræðilæknir.
Sædís Sævarsdóttir, prófessor og deildarforseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.
Ágrip
Í þessari framsýnu rannsókn var bráður nýrnaskaði utan sjúkrahúss (BNS) skoðaður hjá sjúklingum sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala yfir 11 mánaða tímabil. Borin voru saman 512 tilfelli BNS hjá 488 sjúklingum og 1.024 paraðir einstaklingar í viðmiðunarhópi, og var þeim fylgt eftir í 15 mánuði. BNS tengdist nýlegum uppköstum, niðurgangi og þvagteppu, notkun bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID), ACE-hemla/ARB og þvagræsilyfja, auk sykursýki, langvinns nýrnasjúkdóms og reykinga. Sjúklingar með BNS þurftu oftar innlögn, lágu lengur inni á sjúkrahúsi og höfðu hærri 90 daga og eins árs dánartíðni, jafnvel á vægasta stigi. Þeir voru einnig líklegri til að fá endurtekinn BNS og langvinnan nýrnasjúkdóm. Í viðmiðunarhópnum tengdust bæði lítil hækkun (10–49%) og lækkun (≥10%) á kreatíníni hærri eins árs dánartíðni, með U-laga sambandi. Niðurstöðurnar undirstrika áhættu vegna vökvaskorts og notkunar NSAID og RAS-hemla, mikilvægi fræðslu fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk og nauðsyn þess að greina BNS snemma og tryggja eftirfylgd.
Abstract:
This prospective cohort study examined community-acquired acute kidney injury (CA-AKI) in patients presenting to the emergency department at Landspitali University Hospital over 11 months. It compared 512 AKI episodes in 488 patients with 1,024 matched controls, following them for 15 months. AKI was associated with recent vomiting, diarrhea, urinary retention, use of NSAIDs, ACE inhibitors/ARBs and diuretics, as well as diabetes, chronic kidney disease (CKD) and smoking. AKI patients were more often admitted, stayed longer, and had higher 90-day and one-year mortality, even at stage 1. They were also more likely to develop recurrent AKI and CKD. Among controls, both small increases (10–49%) and decreases (≥10%) in serum creatinine were linked to higher one-year mortality, showing a U-shaped relationship. The findings underline the risks of volume depletion and NSAID and RAS-inhibitor use, the need for patient and clinician education, and the importance of early recognition and follow-up.
Um doktorsefnið
Telma Huld Ragnarsdóttir er fædd árið 1988 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð árið 2007, B.Sc. gráðu í læknavísindum frá Háskóla Íslands 2010 og kandídatsprófi árið 2013. Hún lauk sérnámsgrunni 2014 og sérnámi í lyflækningum á Landspítala árið 2023. Einnig hlaut hún MRCP-UK gráðu í lyflækningum árið 2022. Hún starfar nú sem sérfræðilæknir í lyflækningum á Landspítala ásamt því að gegna stöðu aðjunkts í samskiptafræði við Háskóla Íslands.
Móðir Telmu er Elín Lára Jónsdóttir, faðir hennar er Ragnar Örn Jónsson og fósturfaðir Snorri Páll Einarsson. Eiginmaður Telmu er Kristinn Jakobsson og börn þeirra eru Kristjana Lind, Kristinn Þór, Katrín Emma, Katla Rakel og Kári Týr.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!