Saga
S-237 & Zoom
- Aðgangur ókeypis
RANNUM - Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands - býður til málstofu um stafrænar umbreytingar í menntun, þar sem sjónum verður beint að rannsóknum og þróun í Sviss og á Íslandi.
Gestur málstofunnar er Ursula Stohler, vísindalegur verkefnastjóri Centre for Education and Digital Transformation við Zurich University of Teacher Education í Sviss.
Digital Transformation in Education: Zurich Perspectives
Ursula Stohler kynnir starf Centre for Education and Digital Transformation og helstu rannsóknar- og þróunaráherslur þess. Fjallað verður um stafræna umbreytingu sem áskorun og tækifæri fyrir menntun, rannsóknir og faglegt starf og hvernig miðstöðin tengir saman rannsóknir, stofnanaþróun og menntastarf.
Responding to Digital Transformation: Research and Practice in Education in Iceland
Sólveig Jakobsdóttir, Skúlína Hlíf Kjartansdóttir, Tryggvi Brian Thayer og Sigurbjörg Jóhannesdóttir frá RANNUM fjalla um rannsóknir og starf rannsóknarstofunnar í sögulegu samhengi. Sérstök áhersla verður lögð á nýlegar rannsóknir á gervigreind í menntun og námi.
Að erindum loknum verða umræður með þátttakendum um hvað megi læra af reynslu landanna tveggja og hvernig rannsóknir geti stutt skólaþróun og menntun á tímum örra stafrænna breytinga.
Málstofan fer fram á ensku.
Um Ursulu Stohler
Ursula Stohler stýrir vísindalegu starfi Centre for Education and Digital Transformation við Zurich University of Teacher Education. Sérsvið hennar tengjast meðal annars stafrænni umbreytingu í menntun, evrópskum rannsóknarverkefnum, tungumálakennslu og þverfaglegum kennsluháttum. Hún er með doktorspróf í rússneskum fræðum og hefur víðtæka alþjóðlega reynslu úr háskólastarfi.
Öll áhugasöm eru hjartanlega velkomin.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!