Bókasala stúdenta
- Aðgangur ókeypis
Þér er boðið í útgáfuhól:
Bókin How Digital Screen Use Alienates Human Societies, eftir Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði, fjallar um hvernig skjávæðingin firrir mannlegt samfélag. Í bókinni er krufin sú þversögn hvernig aukin tengsl í stafrænum heimi hafa leitt af sér verri tengsl, sem endurspeglast í vaxandi angist og einmanaleika, ójöfnuði, neysluvæðingu, afmennskun, skautun og átökum.
Umfjöllun bókarinnar varpar ljósi á hvernig skjávæðingin hefur grafið undan félagslegum töfrum nærsamfélagsins, og beinir meðal annars sjónum að breyttum samskiptavenjum, takmörkunum skjásamskipta samanborið við bein samskipti, sem og hvernig hinn kapítalíski tækniiðnaður hefur hrifsað til sín og peningavætt mannleg samskipti á kostnað almannaheilla. Bókin höfðar til fólks sem hefur áhyggjur af þróun samfélagsins og vill leita leiða til að næra og bæta samfélagið.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!