Edda
Málstofa Árnastofnunar á 2. hæð
- Aðgangur ókeypis
Rannveig Sverrisdóttir, dósent í táknmálsfræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, og Haraldur Bernharðsson, prófessor í miðaldafræðum við sömu deild, flytja opinn fyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í máltileinkun (RÍM) sem nefnist „Enska sem miðlunarmál á háskólastigi.“ Rannveig og Haraldur eru fulltrúar Háskóla Íslands í verkefninu „English-Medium Education for European Universities“ (EME4EU).
Haldið í Málstofu Árnastofnunar á 2. hæð í Eddu, þriðjudaginn 13. október kl. 15.00-15.45. Verið öll velkomin.
Um fyrirlesturinn
Verkefnið „Enska sem miðlunarmál á háskólastigi í Evrópu“ eða „English-Medium Education for European Universities“ (EME4EU) er samstarfsverkefni sjö aðila frá sjö löndum og styrkt af Erasmus+ áætluninni. Verkefnið sem er til þriggja ára fór af stað í lok síðasta árs og miðar að því að styðja notkun ensku sem miðlunarmáls við kennslu nemenda sem ekki hafa ensku sem móðurmál (English-Medium Education, EME) í háskólum í Evrópu. Það er gert með því að greina árangursríkar kennsluaðferðir og auka vitund um gildi kennslu á ensku í alþjóðlegu háskólastarfi um leið og staða heimamálsins er tryggð. Verkefnið varðar bæði háskólakennara og -nemendur sem og stjórnendur í háskólum. Meðal afurða úr verkefninu verður samanburður á stefnum í ýmsum löndum er varðar notkun ensku sem miðlunarmáls, safn dæma um góða kennsluhætti, leiðbeiningar fyrir stjórnendur um notkun ensku sem miðlunarmáls og fræðsluefni fyrir kennara.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!