Hvenær
18. nóvember 2026
08:30 til 10:00
Hvar

Annars staðar

Grand Hótel Reykjavík

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boðar til morgunverðarfundar, í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana, þar sem fjallað verður um auknar kröfur á sviði netöryggis. Á döfinni er innleiðing nýrrar tilskipunar ESB um netöryggi sem hefur í för með sér stórauknar kröfur á því sviði m.a. fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki í greinum sem flokkast undir samfélagslega mikilvæga innviði á borð við orku, samgöngur, fjármálaþjónustu, póstþjónustu, veitustarfsemi o.fl. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 18. nóvember á Grand Hótel Reykjavík.

Dagskrá:

Ný og mun víðtækari tilskipun um netöryggi
Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu

Álagið á netöryggi og dæmi um afleiðingar
Sandra Ósk Bender, fagstjóri hjá netöryggissveitinni CERT-IS

Aukið hlutverk stjórnenda á sviði netöryggis
Sigrún Lilja Sigmarsdóttir, fagstjóri hjá Fjarskiptastofu

Fyrirspurnir og umræður

Fundarstjóri er Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands

Nánari upplýsingar og skráning hér á síðu Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Auknar kröfur um netöryggi - Morgunverðarfundur 18. nóvember
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil