Sigurður Gylfi Magnússon
Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði
Sigurður Gylfi Magnússon er prófessor í menningarsögu við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Hann kom til starfa við Háskóla Íslands sem fastráðinn starfsmaður árið 2014 eftir að hafa verið sjálfstætt starfandi fræðimaður frá því hann gekk frá prófborði árið 1993 í Bandaríkjunum til ársins 2010. Á því ári fékk hann tímabundna rannsóknarstöðu við Þjóðminjasafn Íslands sem kennd er við dr. Kristján Eldjárn og í henni sat hann til ársloka 2013. Árið 2014 var Sigurður Gylfi ráðinn sem dósent við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands og árið eftir sem prófessor í menningarsögu við sömu deild. Rannsóknir hans hafa einkum beinsta að alþýðumenningu, hversdagslífi, sjálfsbókmenntum (e. egodocuments) og sögu tilfinninganna (e. history of emotions), oft með hjálp aðferða einsögunnar (e. microhistory).
- 1993 Ph.D. Carnegie Mellon University í Bandaríkjunum Sagnfræði
- 1987 MA Carnegie Mellon University í Bandaríkjunum Sagnfræði
- 1984 BA Háskóli Íslands Sagnfræði og heimspeki