Lára Jóhannsdóttir (Hún/Hennar)
Umhverfis- og auðlindafræði
Ég er prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Áherslur mínar í kennslu og rannsóknum eru á samfélagsábyrgð og sjálfbærni fyrirtækja, sjálfbær viðskiptalíkön, innleiðingu stefnu, hagsmunaaðila, heimsmarkmið Sameinuð þjóðanna um sjálfbæra þróun, hringrásarhagkerfi, kerfisáhættu, vátryggingar, norðurslóðir og fleira. Ég var Fulbright Arctic Initiative fræðimaður (2018-2019) og í gegnum árin hef ég tekið þátt í innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum. Meðal verkefna var rannsókn um áhrif COVID-19 á afskekkt samfélög á norðurslóðum, Kennsla stofnanaþols og skjót viðbrögð við kreppu út frá góðum stjórnarháttum í Evrópu (TERRAGOV), Lausnir fyrir vetniseldsneyti í siglingum í samanburði við aðra lágkolefnis valkosti út frá norrænu sjónarhorni (HOPE) og Vetni, ammoníak og metanól í vetnismiðstöðvum á Norðurlöndum (H2AMN). Auk þess hef ég umtalsverða stjórnunar- og sérfræðireynslu úr fjármálageiranum, þ.e. frá vátryggingafélögum og lífeyrissjóðum.
- 2012 Ph.D. Háskóli Íslands Viðskiptafræði
- 2007 MBA Thunderbird School of Global Management Alþjóðleg stjórnun
- 1992 BS Háskólinn á Bifröst Rekstrarfræði
- 1990 Frumgreinanám Háskólinn á Bifröst Frumgreinanám
- UAU201F - Stjórnkerfi umhverfis- og auðlindamála
- UAU114F - Starfsþjálfun í umhverfis- og auðlindafræði
- UAU246F - Inngangsnámskeið fyrir UAU-nema
- UAU262M - Stefnumiðuð samfélagsábyrgð fyrirtækja
- UAU114F - Starfsþjálfun í umhverfis- og auðlindafræði
- UAU109M - Umhverfisstjórnun fyrirtækja
- UAU114F - Starfsþjálfun í umhverfis- og auðlindafræði
- UAU115F - Inngangsnámskeið fyrir UAU-nema
- UAU018M - The Arctic Circle