Ef rétt er staðið að notkun gervigreindar getur hún verið öflugt verkfæri til að einfalda verkefni og flýta fyrir vinnu. Háskóli Íslands leggur áherslu á að nemendur og kennarar hafi eftirfarandi grundvallarreglur að leiðarljósi:
- Notkun gervigreindar í námi og kennslu skal vera í samræmi við reglur og viðmið Háskóla Íslands, bæði hvað varðar tæknileg og siðferðileg atriði.
- Um notkun gervigreindar í námi og kennslu gilda sömu reglur og um aðrar heimildir og hjálpargögn. Vísa skal til heimilda í samræmi við viðurkenndar reglur Háskóla Íslands.
- Misnotkun gervigreindar í námi og kennslu lýtur sömu reglum og önnur brot gegn akademískum heilindum.