Skráning úr námskeiði er jafnframt skráning úr prófi (Uglan mín → Námskeiðin mín. Þar aftan við hvert námskeið er tákn fyrir úrsögn sem hægt er að smella á. Athugaðu að staðfesta þarf valið svo úrsögn taki gildi).

Þú þarft að hafa sagt þig úr námskeiði í síðasta lagi 15. september vegna prófa á haustmisseri og 1. febrúar vegna prófa á vormisseri.

Viljir þú af einhverjum ástæðum skrá þig úr endurtökuprófi sendir þú Nemendaskrá tölvupóst nemskra@hi.is (með nafni, kennitölu, námskeiðsheiti og -númeri) en gjald vegna endurtökuprófa er ekki endurgreitt.

Skráir þú þig ekki úr prófi, sem þú ætlar ekki að taka, jafngildir það falli á prófinu.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil