Námskeið
Staðnámsleið: Námskeiðið er skipulagt þannig að kennsla og nám fara fram á ákveðnum tíma og stað, til dæmis í kennslustofu, og nemendur taka þátt í rauntíma.
Fjarnámsleið: Námskeiðið fer að mestu fram á netinu en krefst þátttöku í rauntíma, til dæmis í kennslustundum eða fundum á netinu, staðlotum eða vettvangsnámi. Nemendur fylgja kennsluáætlun og skila verkefnum innan tilskilinna fresta. Ef próf er haldið í námskeiðinu þarf að taka það á tilsettum tíma.
Netnámsleið: Námskeiðið fer fram á netinu án þess að gerð sé krafa um þátttöku í rauntíma. Nemendur þurfa þó að fylgja kennsluáætlun og skila verkefnum innan tilskilinna fresta. Ef próf er haldið í námskeiðinu þarf að taka það á tilsettum tíma.
Sjálfsnám: Námið byggist á samkomulagi nemanda og kennara og er óháð tíma og stað, til dæmis lesnámskeið eða einstaklingsverkefni.
Námsleiðir
Staðnámsleið: Námskeið námsleiðarinnar eru að jafnaði skipulögð þannig að kennsla og nám fara fram á ákveðnum tíma og stað og nemendur taka þátt í rauntíma. Einstök skyldu- eða valnámskeið kunna þó að vera eingöngu í boði í fjarnámi eða netnámi.
Fjarnámsleið: Námskeið fara að mestu fram á netinu en krefjast þátttöku í rauntíma, til dæmis í kennslustundum eða fundum á netinu, staðlotum eða vettvangsnámi. Nemendur fylgja kennsluáætlun og skila verkefnum innan tilskilinna fresta. Ef próf er haldið þarf að taka það á tilsettum tíma. Hægt er að ljúka námsleiðinni í fjarnámi en einstök valnámskeið kunna aðeins að vera í boði í staðnámi.
Netnámsleið: Námskeið fara fram á netinu án þess að gerð sé krafa um þátttöku í rauntíma. Nemendur fylgja þó kennsluáætlun og skila verkefnum innan tilskilinna fresta. Ef próf er haldið þarf að taka það á tilsettum tíma. Hægt er að ljúka námsleiðinni alfarið í netnámi en einstök valnámskeið kunna aðeins að vera í boði í staðnámi eða fjarnámi.
Blandað nám: Námskeið innan námsleiðarinnar geta verið í staðnámi, fjarnámi eða netnámi eða verið skipulögð sem sjálfsnám.