Nemendur eiga rétt á því að fá að skoða eldri prófverkefni sem lögð hafa verið fyrir.
Prófverkefni eru í prófasafni hvers námskeiðs. Prófasafnið er aðgengilegt á vef námskeiðsins í Uglu.
Í sumum tilvikum hafa kennarar ákveðið að veita sjálfir aðgang að verkefnunum og í prófasafninu sést þá hver kennarinn er og hvenær prófið var haldið. Í þeim tilvikum þarf að hafa samband við kennarann til að skoða eldri prófverkefni.