Þú getur nálgast algengustu vottorð í Uglu þér að kostnaðarlausu undir Uglan mín → Vottorð og námsferilsyfirlit.
Hér er t.d. átt við gögn frá skólanum fyrir stéttarfélag, húsaleigubætur, fæðingarorlof, Menntasjóð, leikskóla, Vinnumálastofnun eða annað.
Ef skila þarf staðfestum gögnum á pappír er hægt að fá stimplað og undirritað vottorð á Þjónustuborðinu Háskólatorgi gegn framvísun skilríkja eða sent í bréfpósti á lögheimili þitt.
Ítarlegri rafrænt innsigluð vottorð er hægt að panta með því að senda tölvupóst á haskolatorg@hi.is. Vottorð kostar 350 kr.
Athugaðu að mjög mismunandi er hvaða upplýsingar þurfa að koma fram í vottorðum og því mikilvægt að þú takir skýrt fram hvaða upplýsingar þú þarft.